Byrjendanámskeið

Byrjendanámskeið verða haldin næstu helgi (með fyrirvara um veðurspá) á vegum Hengils (Skíðadeildir Víkings og ÍR) fyrir börn fædd 2016 til og með 2020. Námskeiðið fer fram á svæðinu og brekkunum við Skíðaskála Hengils á suðursvæði Bláfjalla.

Námskeiðið verður keyrt í 2 hópum yfir 1 helgi.
Fyrsta námskeið er fyrir og eftir hádegi eftirfarandi daga :
Fyrsti dagur: Laugardagur 8.2, kl 10:30-12:30 (hópur A) og kl 13:00-15:00 (hópur B)
Annar dagur: Sunnudagur 9.2, kl 10:30-12:30 (hópur A) og kl 13:00-15:00 (hópur B)

Verð: 27.000 kr og gengur það upp í æfingargjöld ef barn byrjar að æfa skíði með Hengli. Ath: Lyftukort er ekki innifalið í námskeiðsgjaldi.

Veðrið getur haft mikil áhrif á námskeiðið, ef veður verður vont og ekki opið í fjallinu mun námskeiðið færast til um helgi.

Skráning hér: https://www.abler.io/shop/hengill/ski/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mzc3OTg=