Allir krakkar eru hjartanlega velkomnir að æfa skíði með Skíðadeild ÍR
Krakkar geta byrjað að æfa skíði á öllum aldri. Við leggjum okkur fram um að taka vel á móti nýliðum og finnum þeim æfingahóp sem hentar þeirra getustigi. Veturinn 2017-18 bjóðum við upp á stutt byrjendanámskeið, þar sem nýliðar geta mátað sig við skíðaíþróttina áður en þeir taka ákvörðun um hvort þeir vilji byrja að æfa. Þessi námskeið gera okkur einnig mögulegt að taka á móti byrjendum sem ekki eru orðnir lyftuvanir. Við biðjum nýliða að hafa samband við þjálfara í viðkomandi aldursflokki (sjá símanúmer og facebook grúppur hjá upplýsingum um æfingar og þjálfara).
Æfingar allan veturinn
Strax og skíðafæri gefst hefjast skíðaæfingar í Bláfjöllum. Yngstu krakkarnir mæta laugardaga og sunnudaga en þau elstu flesta daga sem opið er fyrir æfingar. Á haustin er iðkendum boðið upp á þrekæfingar frá því fljótlega eftir að skólinn hefst og þar til við fáum snjóinn. Byrjað er á margskonar æfingum útivið, gjarnan hjólað meðan veðrið leyfir og stundum farið á skauta, en þegar kólnar færast æfingarnar inn í íþróttahús.
Skálinn okkar
Í Bláfjöllum á Skíðadeild ÍR nýlegan skála sem kallast Hengill sem rekinn er í samvinnu við Skíðadeild Víkings. Þegar fjallið er opið er skálinn opinn almenningi og gestir velkomnir í sjoppu foreldrafélagsins, en þar má líka kaupa dagskort í lyfturnar. Þarna höfum við góða aðstöðu og ef krakkarnir mættu ráða myndu þau líklega gista í skálanum allar helgar.
Hengill – Öflugt foreldrastarf
Skíðadeildir Víkings og ÍR starfa saman undir nafninu Hengill. Allir foreldrar (eða forráðamenn) barna sem æfa skíði hjá Hengli eru félagar í foreldrafélagi Hengils og eru stjórnir skíðadeildanna myndaðar af foreldrum. Deildirnar eru reknar af foreldrum iðkenda og þar sem margar hendur vinna létt verk mynda stjórnirnar og foreldrafélagið vinnuhópa eða nefndir til að halda utanum einstaka þætti í starfinu. Foreldrar eru hvattir til að taka þátt í íþróttastarfi barna sinna með því að bjóða fram krafta sína í vinnuhópa, taka þátt í mótahaldi, og sinna tilfallandi viðvikum þegar á þarf að halda. Ætlast er til að allar fjölskyldur standi tvær sjoppuvaktir yfir veturinn, sem er mikilvægur liður í fjáröflun starfsins. Núverandi nefndir eru alpagreinanefnd, mótanefnd, sjoppunefnd, skálanefnd, skálagistinga- og dimbilvikunefnd, Andrésarnefnd, fatanefnd og fjáröflunarnefnd.