ÍR-ingurinn, Signý Sveinbjörnsdóttir keppti á Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Vuokatti í Finnlandi dagana 19.-23.mars sl. Þetta var ferð á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands með íþróttafólki í alpagreinum, skíðagöngu, listskautum og á snjóbrettum. Signý keppti í svigi og stóð sig vel. Þetta mót var mikil upplifun og ævintýri fyrir ungmenni fædd 2003-2004, hvaðan að úr Evrópu og mikill heiður að vera valin til þátttöku fyrir hönd Íslands. Skíðadeild ÍR óskar Signýju innilega til hamingju með þátttökuna á þessu móti.