Valur Pálsson fyrrverandi formaður skíðadeildar ÍR og Helgi Hallgrímsson,
einn af máttarstólpum skíðadeildarinnar létust með skömmu millibili.
Þeir voru góðir vinir og frændur sem gengu til liðs við Skíðadeild ÍR á sjötta
áratugnum.
Valur var formaður deildarinnar árin 1976-1985. Á þeim árum var mikil
uppbygging í Hamragili, skíðasvæði ÍR-inga. Skíðalyftur reistar, skálinn
endurbyggður, keyptur snjótroðari og þjónustuhús byggt.
Helgi stjórnaði öllum verklegum framkvæmdum sem voru miklar á þessum
árum.
Allt þetta kallaði á ómælda sjálfboðavinnu. Það voru margar
vinnustundirnar sem þeir félagar Valur og Helgi áttu í Hamragili. Þeir létu
sitt heldur ekki eftir liggja við að efla skíðaíþróttina sjálfa, unnu við
skíðamót, tóku þátt í starfsemi Skíðasambandsins og Skíðaráðs Reykjavíkur.
Það má segja að ekki hafi verið haldið skíðamóti í Hamragili í fjölda
ára án þess að Valur gegndi mótstjórahlutverki, en staður Helga
var oftar en ekki að vera ræsir.
Eftir að þeir hættu í framvarða sveit deildarinnar var alltaf hægt að
leita til þeirra. Enda reynslumiklir og ráðagóðir menn.
Það er ómetanlegt fyrir starfsemi eins og skíðadeildar ÍR að hafa
notið krafta þessara jákvæðu, hressu og framsýnu manna. Það var
alltaf gaman að vera með þeim, hvort sem var í brasi við troðara,
byggingu á lyftum, vinnu við skíðamót svo ekki sé nú talað um
gleðistunda í skíðaferðum.
Félagar skíðadeildarinnar hugsa með hlýhug og þakklæti til Vals
Pálssonar og Helga Hallgrímssonar og votta fjölskyldum þeirra
samúð.
f.h. Skíðadeildar ÍR Auður Björg.