Æfingar ungmenna á haustönn 2018

Mánudaginn 3. september hefjast æfingar ungmenna á haustönn 2018 hjá keiludeild ÍR. Sem fyrr fara æfingarnar fram í Keiluhöllinni Egilshöll. Boðið er upp á tvo hópa, grunnhóp þar sem nýjir iðkendur eru og svo framhaldshóp þar sem iðkendur sem eru lengra komnir mæta. Hvorum hópnum fyrir sig er skipt upp eftir aldri og getu. Skráning iðkenda fer fram í gegn um vef ÍR.is  Bjóðum nýja iðkendur sérstaklega velkomin í keilu.

Æfingataflan er sem hér segir:

  • Mánudaga frá kl. 17:00 til 18:30 – Framhaldshópur að undanskildum þeim sem eru að keppa á mánudögum
  • Þriðjudaga frá kl. 17:00 til 18:00 – Grunnhópur að auki Framhaldshópur sem er að keppa á mánudögum
  • Miðvikudagar frá kl. 16:00 til 17:00 – ÍR ungar
  • Miðvikudaga frá kl. 17:00 til 18:30 – Framhaldshópur
  • Fimmtudagar frá kl. 17:00 til 18:00 – Grunnhópur
  • Föstudagar frá kl. 16:00 til 17:00 – ÍR ungar

Allar nánari upplýsingar má fá með því að senda póst á keiludeild ÍR eða á Stefán Claessen yfirþjálfara deildarinnar. Vekjum athygli á að deildin er með lokaða Facebook síðu fyrir þá krakka og forráðamenn sem æfa hjá deildinni. Þar inn eru setta tilkynningar og annað sem við á um starfsemina.

X