Verðlaunahátíð ÍR verður haldin fimmtudaginn 27. desember, kl. 17:30 í ÍR-heimilinu.
Íþróttakona og íþróttakarl hverrar deildar innan ÍR fyrir árið 2018 fá viðurkenningar. Úr þessum hópi tilnefnds íþróttafólks deilda hefur aðalstjórn valið íþróttakonu ÍR og íþróttakarl ÍR 2018 sem verða heiðruð á hátíðinni.
Við sama tækifæri verða sautján sjálfboðaliðar heiðraðir með silfurmerki félagsins og þrír sjálfboðaliðar heiðraðir með gullmerki fyrir óeigingjarnt starf í þágu þess á undanförnum árum.
Fögnum frábærum árangri ÍR-inga á árinu 2018.
Allir ÍR-ingar velkomnir.