Íþróttaskóli ÍR fyrir 2-5 ára börn

Íþróttaskóli ÍR er í boði einu sinni í viku á laugardögum frá 12. janúar og til 4. maí. Skólinn hefur aðsetur í íþróttahúsi Breiðholtsskóla og ÍR heimilinu og eru 2-3 ára börn saman í hóp og 4-5 ára börn saman.

Í Íþróttaskólanum eru leystar ýmsar þrautir sem reyna á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu, líkamlegan þroska sem og félagslegan. Börnin læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman.

Æfingagjald er 15.000 kr fyrir vorönn 2019 en hægt að nálgast nánari upplýsingar um skólann á eftirfarandi slóð: https://ir.is/ithrottaskoli-2-5-ara/.

Búið er að opna fyrir skráningar inn á heimasíðu ÍR, ir.is

Íþróttaskóli æfingatafla

Hlökkum til að sjá ykkur á nýju ári.

X