ÍR-ingar fagna 110 ára afmæli félagsins á stofndegi þess 11. mars n.k. Þann dag standa deildir félagsins fyrir sýningum, leikjum og mótum hver í sinni íþróttagrein. Foreldrar iðkenda og allir ÍR-ingar eru sérstaklega boðnir til að fylgjast með og taka þátt í dagskrá afmælisdagsins sem hér fer á eftir:
Dagskrá afmælisdagsins 11. mars:
Keppni og sýningar
á vegum deilda ÍR frá 10:00-16:00:
Fimleikar: Fimleikasýning í Breiðholtskóla
Frjálsar: Bikarkeppni FRÍ, A og B lið ÍR keppa í Laugardalshöll
Handbolti: Þrautabrautir, softball og all star leikur í Austurbergi
Fótbolti: Yngri flokka leikir á ÍR velli og opin æfing yngri flokka með meistaraflokkum
Körfubolti: Opin æfing, körfuboltaþrautir og leikir í íþróttahúsi Seljaskóla
Júdó: Júdósýning í ÍR-heimili
Taekwondo: Taekwondosýning í ÍR-heimili
Karate: Karatesýning í ÍR-heimili
Keila: Íslandsmót einstaklinga með forgjöf í keilu í Egilshöll
Skíði: Afmælismót ÍR fyrir 11 ára og yngri í Bláfjöllum
Afmælishóf
opið hús í ÍR-heimilinu kl. 16:00-17:30:
16:00 Setning og ávarp
16:10 Saga ÍR í 110 ár
16:25 ÍR í dag og framtíðin
16:40 Ávörp gesta
16:55 Heiðursviðurkenningar
17:10 Kaffiveitingar
Myndasýningar úr sögu félagsins
Myndir og uppdrættir af fyrirhuguðum mannvirkjum á ÍR-svæðinu
17:30 Samkomuslit