Karlalið ÍR í körfubolta og handbolta luku bæði keppni á Íslandsmótinu um helgina. ÍR-ingar töpuðu naumlega fyrir liði Tindastóls í fjögurra liða undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta á Sauðárkróki 87-90 og fyrir ÍBV í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta 25-29 í Austurbergi. Glæsileg umgjörð og mögnuð stemmning einkenndi heimaleiki ÍR í úrslitakeppninni í báðum greinum. Stuðningsmenn ÍR geta verið stoltir af sínu framlagi, en á síðustu heimaleiki beggja liða mættu 800-900 áhorfendur. Hér fylgja nokkrar myndir frá leikjum liðanna í Hertz-Hellinum og Austurbergi.