Erna Sóley heiðursgestur á Bronsleikum ÍR í frjálsíþróttum

Bronsleikar ÍR í frjálsíþróttum sem fara fram í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal nk. laugardag 5. október eru haldnir árlega til heiðurs ÍR-ingnum Völu Flosadóttur og bronsverðlaununum sem hún vann í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000. Keppendur í ár eru um 300 og keppt í aldursflokkum 6-11 ára.

Heiðursgestur mótsins að þessu sinni er annar Ólympíufari ÍR og eini Íslendingurinn sem tók þátt í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í París í sumar, kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir. Hún mun afhenda ungum og upprennandi frjálsíþróttakeppendum verðlaun sín fyrir þátttökuna í Bronsleikunum og hvetja þá til dáða.

Upphaf Bronsleikanna má rekja aftur til ársins 2010 en þá voru þeir haldnir fyrst þegar 10 ár voru liðin frá afreki Völu. Leikarnir nú eru þeir fimmtándu í röðinni.

Keppni hefst kl. 9:30 og stendur yfir til 14:30. Frír aðgangur fyrir alla.

Nánari upplýsingar gefur: Þráinn Hafsteinsson formaður mótanefndar frjálsíþróttadeildar ÍR S. 8631700 og netfang: thrainnh@hi.is

X