Æfingar falla niður hjá grunnskólabörnum

Í samráði við Almannavarnir höfuðborgarsvæðisins og skóla- og frístundasvið Reykjavíkur hefur verið
tekin sú ákvörðun að fella niður allt skólastarf í Seljaskóla föstudaginn 14. janúar og mánudaginn 17.
janúar. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi mikilla smita bæði nemenda og starfsmanna.
Jafnframt hefur sú ákvörðun verið tekin að loka Vinaseli, Regnboga og Hólmaseli og í samráði við ÍR
verða engar æfingar hjá grunnskólabörnum frá fimmtudeginum 13.janúar .

Þessi tilkynning á eingöngu við æfingar sem fara fram í Breiðholti.

Staðan er þannig að ekki hefur tekist að ná utan um rakningu smita að öllu leyti síðastliðna daga og
því er talið skynsamlegt að loka tímabundið til þess að fá betri yfirsýn á stöðuna. Fundað verður aftur
með Almannavörnum, skóla- og frístundasviði, frístunda- og félagsmiðstöðvum og ÍR mánudaginn 17.
janúar og staðan endurmetin.

Við óskum eftir skilningi ykkar og þátttöku í þessu verkefni að reyna nú að draga úr útbreiðslu sem
virðist vera á fleygiferð í hverfinu okkar. Vonandi skilar þessi ráðstöfun árangri ef allir leggjast á eitt.
Við hvetjum alla forráðamenn að fara í einkennasýnatöku með börn sín við minnstu einkenni.

X