Fimmtudaginn 13. mars kl. 19:30 verður aðalfundur Frjálsíþróttadeildar ÍR haldinn í Laugardalshöll.
Dagskrá aðalfunda skv. lögum ÍR :
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi deildarinnar.
3. Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár.
4. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
5. Kosinn formaður.
6. Kosnir aðrir stjórnarmenn.
7. Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins.
8. Ákveðin æfingagjöld.
9. Önnur mál