ÍR ungar

ÍR-ungar, fyrir krakka í 1. og 2. bekk

Átta íþróttagreinar!

Íþróttafélag Reykjavíkur býður öllum börnum í fyrsta og öðrum bekk grunnskóla að iðka allt að átta íþróttagreinar fyrir eitt æfingagjald.

Börnin fá þannig tækifæri til að prófa og kynnast mörgum íþróttagreinum í einu og geta flutt sig milli greina eins og þau vilja, á meðan þau finna þá grein sem hentar þeim.

Keila- Fimleikar – Körfubolti – Knattspyrna – Handbolti – Skíði – Frjálsar – Karate – Taekwondo

Systkinaafsláttur gildir ekki fyrir ÍR-unga.

Æfingarnar

Flestar æfingar ÍR-unga verkefnisins fara fram á milli kl. 14:30-16-30 á virkum dögum.

Æfingatöfluna má sjá undir æfingatöflur og gjöld.

Hægt er að skrá sig með því að smella hér

 

Strætóinn (Hringferð á milli æfingastaða í Breiðholti)

Breiðholtsstrætó þjónar ÍR-ungum.
Vagninn leggur af stað kl. 13:55 frá Austurbergi og kemur við að eftirtöldum stöðum:

Rútan gengur alla virka daga

13:55 Hólabrekkuskóli

14:00 Breiðholtsskóli (sundlaug)

14:10 Seljaskóli (aðal inngangur) (þarf auka rútu á miðvikudögum)

14:20 Ölduselsskóli

14:25 ÍR-heimili

 

14:40 Austurberg íþróttahús (Hólabrekkuskóli)

14:50 Breiðholtsskóli (sundlaug)

15:00 Ölduselsskóli (Bílaplan fyrir framan skólann)

15:15 Seljaskóli (aðal inngangur)

15:40 ÍR-heimili

 

15:50 Ölduselsskóli

15:55 Seljaskóli (aðal inngangur)

16:05 Breiðholtsskóli (sundlaug)

16:15 Austurberg íþróttahús (Hólabrekkuskóli)

 

Frídagar ÍR-unga

ÍR-unga strætó gengur ekki þegar lögbundin/- og  vetrar frí er í skólum.

Styrktaraðilar ÍR

X