Bronsleikar ÍR

Bronsleikar ÍR eru haldnir að hausti ár hvert. Leikarnir eru til heiðurs Völu Flosadóttur sem vann til bronsverðlauna í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000.

Á Bronsleikum er keppt í Fjölþraut barna sem samanstendur af þrautum sem reyna á styrk, snerpu, úthald og samhæfingu. Þrautirnar eru þróaðar sérstaklega fyrir þann aldur sem þær eru lagðar fyrir svo allir ættu að fá skemmtileg viðfangsefni við hæfi.

Tímasetning

Leikarnir árið 2025 verða haldnir í Laugardalshöll 4. október og hefst keppnin klukkan 9:30.

Keppendum verður raðað í hópa sem byggðir eru á félögum sem þeir koma frá en einnig verða settir saman hópar úr smærri félögum og einstaklingum.
Þann 3. október verða upplýsingar verða sendar á foreldra og/eða þjálfara liðsins sem skráir keppendurna. Þar verða upplýsingar um mætingu, rástíma og hvenær keppni lýkur hjá hverjum hópi. Hver keppnishópur má hafa 3 liðsstjóra með sér og hvetjum við félögin til að skipuleggja það vel.

Dagskrá Bronsleika

9:30  – 7 ára og yngri (2017- )

10:40 – 8 – 9 ára (2015-2016)

12:00 – 10 – 11 ára (2013-2014)

7 ára og yngri (2018- )

Fjölþraut barna – Börnin fara í 8 til 14 manna hópum í gegnum þrautabraut sem samanstendur af 6 þrautum.

8 – 9 ára (2016-2017)

Þríþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, skutlukasti og 60m hlaupi.

Tímataka verður í 60 metra hlaupi og  2 mældar tilraunir í langstökki og skutlukasti.

10 – 11 ára (2014-2015)

Fjórþraut – Börnin mynda 8 manna hópa og reyna sig í langstökki, kúluvarpi, 60m hlaupi og 600m hlaupi.

Í langstökki fá allir þrjú stökk og í kúluvarpi fá allir 4 köst og tvö lengstu köstin mæld.

Í fjórþrautinni er tekinn tími og árangur hvers og eins mældur og skráður inn í mótaforritið Þór.

Athugið að aldursflokkar miðast við fæðingarár en ekki afmælisdag.

Skráning verður á  netskraning.is

Ef þjálfarar vilja hafa áhrif á hópaskiptingu eru þeir beðnir um að senda póst á irfrjalsar@gmail.com ekki síðar en þriðjudaginn 30. september kl 16:00.

Í Fjórþraut verður félögum raðað saman í hópa eins og kostur er.

Skráningu lýkur 3. október kl. 12:00 (á hádegi).

Fullt þáttökugjald frá 30. september 23:59

  • 9 ára og yngri – 6.500 kr
  • 10 – 11 ára – 7.000 kr

40% afsláttur af þáttökugjaldi frá 24.september – 30.september kl 23:59

  • 9 ára og yngri – 3.900  kr
  • 10 – 11 ára – 4.200 kr

60% afsláttur af þáttökugjaldi til 23.september kl 23:59

  • 9 ára og yngri – 2.600  kr
  • 10 – 11 ára – 2.800 kr

Þátttökuviðurkenning fyrir alla keppendur

irfrjalsar@gmail.com

Sjáumst á Bronsleikum ÍR!

Styrktaraðilar ÍR