Stórmót ÍR, samantekt

ÍR hélt sitt 21. Stórmót helgina 11. – 12. febrúar í Laugardalshöll. Um 800 keppendur, á aldrinum 5 til 53 ára frá 38 félögum, tók þátt, þar af fjöldi Færeyinga en það má segja að það sé ekkert Stórmót lengur án vina okkar frá Færeyjum. Þeir yngstu tóku þátt í þrautabrautinni sem sett er upp annarsvegar fyrir 8 ára og yngri og hins vegar fyrir 9-10 ára. Fyrir 11 ára og eldri er fjöldi keppnisgreina í boði fyrir bæði kynin allt frá 60m spretthlaupi til stangarstökks. ÍR sendi 106 keppendur til leiks auk fjölda barna sem tóku þátt í þrautabrautinni sem eru fyrstu skrefin til að öðlast samhæfingu og leikni í greinum frjálsra íþrótta.

Þó svo að Stórmótið sé ekki eingöngu gert til þess að sigra og setja met þá er það stór hluti af þátttöku margra og kom það skýrt fram í frábærum árangri margra keppenda en nærri 730 bætingar litu dagsins ljós og hvorki fleiri né færri en 21 mótsmet. Það afrek sem stóð upp úr var án efa tími Guðbjargar Jónu Bjarnadóttur ÍR í 200m hlaupi stúlkna, 24.28 sek, en hún setti Íslandsmet alveg upp í 22 ára flokkinn en hún keppir í flokki 16-17 ára. Þessi tími setur Guðbjörgu Jónu í 4. sæti á heimslista undir 18 ára stúlkna sem er enginn smá árangur í 200m hlaupi. Sá sem setti flest mótsmet var Sindri Freyr Seim Sigurðarson frá ungmennafélaginu Heklu en hann setti mótsmet í 200m, 60m grindahlaupi og langstökki í flokki pilta 14 ára. Fjögur aldursflokkamet féllu, það var í stangarstökki 15 ára stúlkna þar sem Thelma Rós Hálfdánardóttir FH stökk 3,30m, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir setti met í 200m hlaupi í flokkum 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára á tímanum 24,28 sek Birna Kristín Krisjánsdóttur Breiðabliki setti met í 60m grindahlaupi 15 ára 9,05 sek, Erna Sóley Gunnarsdóttir Aftureldingu setti met í kúluvarpi 17 ára 15,23 m

ÍR hlaut flest verðlaun eða 62 talsins, FH var í 2. sæti með 47 og Breiðablik fylgdi fast á hæla þeim með 45 verðlaun.

ÍR ingar þakka öllum sem lögðu hönd á plóginn við framkvæmd mótsins, einnig öllum þátttakendum og þjálfurum fyrir samveruna sem og áhorfendum sem fylltu stúkuna og voru afar og ömmu áberandi í stúkunni að styðja við barnabarnið og njóta góðrar samveru.

— Fríða Rún Þórðardóttir tók saman

X