ÍR skokk býður upp á fjögurra vikna byrjendanámskeið sem hefst miðvikudaginn 2. september 2020.
Hlaupið verður frá ÍR heimilinu við Skógarsel á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:30. Námskeiðið hentar byrjendum á öllum aldri og getustigum. Þjálfarar eru Valur Þór Kristjánsson og Sigrún Edwald. |
Verð er kr. 13.700 og innifalið í námskeiðinu er skráning í ÍR skokk eftir að námskeiði lýkur og út desember.