Aðalfundur frjálsíþróttadeildar ÍR haldinn 30. mars kl. 19:30 (Ath breyttan tíma)

Boðað er til aðalfundar frjálsíþróttadeildar ÍR miðvikudaginn 30. mars kl. 19:30 í Laugardalshöll.

Dagskrá fundarins

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
  • Lesnir og skýrðir rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir síðasta almanaksár
  • Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár
  • Kosning formanns, gjaldkera og annara stjórnarmanna.
  • Kosnir fulltrúar og varafulltrúar á aðalfund félagsins
  • Ákveðin æfingagjöld
  • Önnur mál

Vonumst til að sjá sem flesta
Með bestu kveðju
Stjórn frjálsíþróttardeildar

X