Ellefu einstaklingar sem lagt hafa félaginu lið með ómældri sjálfboðavinnu og stuðningi voru heiðraðir með silfurmerki ÍR á verðlaunahátíð félagsins sem fram fór miðvikudaginn 27. desember sl. Öllum þessum einstaklingum eru þökkuð frábær störf í þágu félagsins og þess jafnframt óskað að við getum notið þeirra krafta um ókomna tíð.
Þeir sem hlutu silfurmerki ÍR að þessu sinni voru eftirtaldir:
Jóhann Ágúst Jóhannsson, keiludeild
Linda Hrönn Magnúsdóttir, keiludeild
Hendrik Berndsen, körfuknattleiksdeild
Guðrún Margrét Ólafsdóttir, körfuknattleiksdeild
Hlynur Elísson, knattspyrnudeild
Aðalsteinn Björnsson, knattspyrnudeild
Eyjólfur Clausen, knattspyrnudeild
Atli Geri Jóhannesson, knattspyrnudeild
Rannveig Oddsdóttir, handknattleiksdeild
Jóna Þorvarðardóttir, frjálsíþróttadeild
Árni Árnason, frjálsíþróttadeild