Verðlaunahátíð ÍR 2017

Verðlaunahátíð ÍR verður haldin í dag, miðvikudaginn 27. desember,  kl. 17:30 í ÍR-heimilinu.

Íþróttakona og íþróttakarl hverrar deildar innan ÍR fyrir árið 2017 fá viðurkenningar.  Úr þessum hópi tilnefnds íþróttafólks deilda hefur aðalstjórn valið íþróttakonu ÍR  og íþróttakarl ÍR 2017 sem verða heiðruð á hátíðinni.

Við sama tækifæri verða sextán sjálfboðaliðar heiðraðir með silfurmerki félagsins fyrir óeigingjarnt starf í þágu þess á undanförnum árum.

Fögnum frábærum árangri ÍR-inga á afmælisárinu 2017.

Allir ÍR-ingar velkomnir.

 

 

X