Aukin ánægja unglinganna hjá ÍR

Í nýrri skýrslu sem ÍBR lét gera um ánægju unglinga í íþróttum á árinu 2016 kemur margt fróðlegt fram.  Sérstök skýrsla var gerð fyrir ÍR þar sem svör 179 unglinga í 8.-10. bekk grunnskóla sem æfa með ÍR voru greind.   Svipaðar kannanir voru gerðar árin 2010 og 2012 og því hægt að bera saman niðurstöður og hugsanlega meta þróunina á sex ára tímabili.  Hér eru niðurstöður svara við fjórum mjög mikilvægum spurningum.

Finnst þér vanalega gaman á æfingum hjá íþróttafélaginu sem þú æfir hjá?
Árið 2010 voru 80% iðkenda ÍR ánægðir og var það undir meðaltalsánægju í Reykjavík sem var þá 84%.  Árið 2016 finnst 89% unglinganna sem æfa hjá ÍR gaman á æfingum og er ánægjan yfir Reykjavíkurmeðaltalinu sem er 88%.

Ertu ánægð/ur með íþróttafélagið þitt?
Árið 2010 voru 82% ÍR- unglinga ánægðir með félagið en meðaltalsánægja í Reykjavík var 83%.  Árið 2016 er ánægja ÍR-unglinganna komin í 90% og upp fyrir Reykjavíkurmeðaltalið sem er 87%.

Ertu ánægð/ur með íþróttaþjálfarann þinn hjá íþróttafélaginu?
Árið 2010 voru 76% unglinga ÍR ánægðir með þjálfarann sinn sem var vel undir Reykjavíkurmeðaltalinu 80%.  Árið 2016 er ánægja ÍR-unglinganna komin í 86% sem er yfir Reykjavíkurmeðaltalinu sem er 85%.

Ertu ánægð/ur með æfingaaðstöðuna hjá íþróttafélaginu?
Árið 2010 voru 79% ÍR-unglinga ánægðir með aðstöðuna sem þeir höfðu til æfinga og keppni. Sú ánægja var í samræmi við Reykjavíkurmeðaltalið.  Ánægja ÍR-unglinga hefur aukist mjög frá 2010 því árið 2016 eru 87% ÍR-unglinga ánægðir með aðstöðuna sem er langt yfir Reykjavíkurmeðaltalinu sem er 80%.

Stóraukin ánægja ÍR-unglinga
Árið 2010 eru ÍR-unglingar neðan við meðaltal í Reykjavík í ánægju með félagið, þjálfarann og hvort skemmtilegt sé á æfingum.  Árið 2016 eru ÍR-unglingar hinsvegar mun ánægðari með þá fjóra þætti sem spurt var um og eru að meðaltali ánægðari en gengur og gerist í öðrum félögum í Reykjavík.  Af þessum tölum má ætla að unglingastarf  ÍR hafi tekið miklum framförum og meiri framförum en að meðaltali hjá öðrum íþróttafélögum í Reykjavík á tímabilinu 2010-2016.

Til hamningju ÍR-ingar

 

 

 

X