Árleg úthlutun úr Magnúsarsjóði, menntunar- og afrekssjóði ÍR fer fram í byrjun júní. Opið er fyrir umsóknir til og með 31. maí 2017 og skal þeim skilað til Þráins Hafsteinssonar íþróttastjóra ÍR á skrifstofu félagsins. Umsækjendum er bent á að fylla út sérstakt umsóknareyðublað sjóðsins sem fylgir hér neðst í fréttinni.
Sjá nánar um markmið sjóðsins:
- gr.
Markmið sjóðsins er að:
- Veita afreksfólki í öllum deildum innan ÍR styrk vegna æfinga og/eða keppni og búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
- Veita styrk til þess íþróttafólks sem valið er til æfinga eða keppni sbr. 3. gr.
- Veita þjálfurum og leiðbeinendum sem starfa á vegum ÍR styrk til að sækja viðurkennd þjálfaranámskeið og/eða aðra menntun sem eflir þá í starfi.
Stuðningur við þjálfara til endurmenntunar er hvetjandi fyrir viðkomandi m.a. til að halda áfram vinnu sinni fyrir félagið.
3.gr.
Úthlutun – skilyrði
Aðeins þeir aðilar sem iðka eða þjálfa innan vébanda ÍR geta sótt um í sjóðinn. Til þess að fá styrk úr sjóðnum verður íþróttafólk innan ÍR að hafa sannað sig í sinni íþróttagrein hjá félaginu og verða um leið að sýna þann áhuga sem þarf til að ná auknum árangri og vinna af heilum hug fyrir félagið. Í einstaklingsíþróttum þarf iðkandinn að hafi unnið til verðlauna á Íslandsmóti eða öðrum sambærilegum mótum í sínum aldursflokki. Iðkandi í hópíþrótt þarf a.m.k. að vera í æfingahópi meistaraflokks, eða vera í landsliðsúrtaki í sínum aldursflokki. Þjálfarar þurfa að búa að góðum faglegum grunni, mikilli reynslu og sýna mikinn áhuga og metnað á þjálfun.