Press here for English version
RIG 2018 verður haldið dagana 1. til 4. febrúar 2018 í Keiluhöllinni Egilshöll. Úrslitakeppnin fer fram sunnudaginn 4. febrúar og verður í beinni útsendingu á RÚV frá kl.15:30 til 17:00
Jeper hefur komið áður á RIG og þá oftast með konu sinni henni Rikke Agerbo en hún hefur í tvígang unnið RIG mótið. Að þessu sinni kemur Jesper einn síns liðs og er mikill fengur fyrir mótið enda sigraði hann bæði All Events keppnina á Evrópu- og Heimsmeistari landsliða 2016. Jesper hefur verið í landsliði Dana mörg undanfarin ár og keppti nú síðast á HM í Las Vegas.
Mattias W hefur ekki áður komið á RIG En hann var hér á ECC 2014 og náði þar öðru sæti á mótinu. Hann þekkir því ágætlega til Egilshallar og verður gaman að fylgjast með honum á brautunum. Mattias er feykisterkur keilari og gerði sér síðan lítið fyrir og varð Evrópumeistari einstaklinga í fyrra.
Robert Anderson er vel tengdur ÍR enda nánast tengdasonur félagsins, kvæntur Öldu Harðardóttur. Robert á langan og farsælan feril að baki með Evrópu- og Heimsmeistaratitlum einstakling og liðs. Robert var nú síðast landsliðsþjálfari Sádi Arabíu en er kominn heim til Svíþjóðar aftur.
Annað árið í röð kemur Chris Sloan til okkar. Hann var ekki búinn að vera hér á landi í fyrra nema í nokkra klukkutíma þegar hann henti í 300 leik en hann hefur spilað vel yfir þrjátíu 300 leiki í yfir 10 löndum. Chris varð í 2. sæti á Heimsbikarmóti einstaklinga 2016 í Shanghai í Kína. Chris á m.a. 889 pinna þriggja leikja seríu sem er bara 296,3 í meðaltal, geri aðrir betur.
Pontus kom einnig í fyrr á RIG og líkaði svona vel að hann mætir aftur. Pontus er einn efnilegasti ungi Svíinn í dag. Hann hefur m.a. afrekað það að ná 1. sæti á HM ungmenna 2016, var Svíþjóðarmeistari í liðakeppni 2016, 1. sæti á EM ungmenna 2014 og hefur verið í landsliði Svía frá 2013.
Mattias Möller er góðkunningi okkar og kemur enn eitt árið í heimsókn.
Olíuburður í mótinu verður HIGH STREET – 8144 (44 fet)
Early Bird laugardaginn 27. janúar frá kl. 09 til 12 – Skráningu lýkur 26. janúar kl. 18 – Verð kr 5.000,-
1. riðill fimmtudaginn 1. febrúar frá kl. 17 til 20 – Skráningu lýkur 31. janúar kl. 20 – Verð kr 6.000,-
2. riðill föstudaginn 2. febrúar frá kl. 11 til 14 – Skráningu lýkur 1. febrúar kl. 18 – Verð kr 6.000,-
3. riðill föstudaginn 2. febrúar frá kl. 14:30 til 17:30 – Skráningu lýkur 1. febrúar kl. 18 Verð kr 6.000,-
4. riðill laugardaginn 3. febrúar frá kl. 09 til 12 – Skráningu lýkur 2. febrúar kl. 18 – Verð kr 6.000,-
*Athugið að takmarkaður fjöldi keppenda kemst að í hverjum riðli forkeppninnar
*Athugið að skráningarfrestur er í hvern riðil, sést í vefskráningu
Vertu með okkur á Twitter – Örféttir af mótinu og annar fróðleikur
Vertu með okkur á Facebook – Fréttir af mótinu, myndir og annað skemmtilegt sem kemur upp
Horfðu á okkur á Snapchat – islenskakeilan – Öðruvísi nálgun á viðburði mótsins
Síðast uppfært: 27.01.2018 klukkan 14:41