Bjartur, opinn og rúmgóður veislusalur fyrir 80 manns í sæti. Einnig rými fyrir framan sal með hornsófa.

Er á annarri hæð, gott aðgengi og lyfta. Svalir sem snúa út að íþróttasvæðinu.

Bókað er með því að hringja í síma 587-7080 eða senda póst á bokhald@ir.is

Verð  frá 1. september 2023.

Föstudagskvöld – 75.000,- og 20.000 fyrir þrif.

Salurinn er afhentur kl. 18:30.  Hugsanlega er hægt að afhenda salinn fyrr og bætist þá 15.000,-  við leiguna.

Starfsmaður kemur kl. 01.00, þrífur salinn og lokar húsi.

Laugardagskvöld  – 90.000,- og 20.000 fyrir þrif   

Salurinn er afhentur  kl. 13 sama dag. Ef óskað er eftir honum kvöldið áður greiðast aukalega 20.000,-

Starfsmaður kemur kl: 01:00,  þrífur salinn og lokar húsi.   

Dagleiga um helgar – 60.000,- og 15.000 fyrir þrif  

Salurinn er afhentur 09:00 að morgni. 

Dagleiga á virkum dögum – 45.000.

Lyklar  

Fyrir helgarleigu þarf að sækja lykla að húsinu á skrifstofu ÍR í síðasta lagi klukkan 12:00 á föstudegi. Þá er kennt á þjófavarnarkerfið og farið yfir húsreglur.

Hvaða búnaður er til fyrir leigjendur?  

Borðbúnaður (glös, diskar, hnífapör og bollar) fyrir u.þ.b. 100 manns.  

Stólar fyrir 80 manns.

Borð : 16 felliborð, stærð 183*76. (Geta 6-8 sitið við borðið)

Hljóðkerfi til að spila músík af síma/tölvu.  

Hljóðnemi og púlt.

Stórt og flott gasgrill á svölunum.

Eldhús með ofni, örbylgjuofni og ferðahellu.

Uppþvottavél.

Ísskápur til að geyma drykki og mat.  

ATH: Við eigum ekki dúka á borðin.

Skyldur leigjenda 

Staðfestingargjald er greitt við bókun kr. 20.000,- krafa stofnuð í netbanka.

Lokagreiðsla í síðasta lagi viku fyrir viðburð, krafa stofnuð í netbanka.

Raða stólum og borðum aftur upp á vagna – eins og komið var að þeim.  

Vaska upp leirtau og annan búnað sem notaður var – raða á sama stað og tekið var. 

Veislur skulu vera búnar ekki síðar en 01:00.

Ef salurinn er í slæmu ásigkomulagi eftir leigjendur, áskilur leigutaki sér rétt til þess að innheimta aukagjald vegna þrifa, allt að 25.000 kr. 

Síðast uppfært: 15.05.2023 klukkan 8:57

X